<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    mánudagur, desember 31


    Gleðilegt nýtt ár mis chicas!

    kiss, kiss
    Bella

    ...tíkin hefur talað!

    föstudagur, desember 21


    Hvernig er það, verður nokkuð eitthvað jólagjafavesen á okkur í ár? Ef ég á að vera alveg fullkomlega hreinskilin myndi ég verða voðalega glöð ef við gætum skippað því í ár því ég á orðið mjög erfitt með langar verslunarferðir og það hreinlega líður yfir mig við tilhugsunina að fara að leita að gjöfum handa ykkur öllum. Ég rétt lifði verslunarleiðangurinn fyrir famelíuna af og baaaaah mig bara langar ekki í meiri búðir... :'(

    Ég verð heartbroken ef þið mætið til mín á aðfangadag með pakka og ég hef engan til að gefa á móti... plíííííís ekki gera mér það. Hins vegar skal ég gefa ykkur öllum þeim mun flottari afmælisgjöf á næsta ári! :) It's a promise

    Elska ykkur allar my darlings :* kyssikyss

    -Tino

    ...tíkin hefur talað!

    þriðjudagur, desember 18


    Pant veruleikahitting!

    Ekki einhvern hitting sem verður aldrei af.

    Kommon. Einn fyrir jól? Á milli jól og nýárs? Á nýja árinu? Eftir 20. til að bjóða SiggiDéið velkomið? Með eða án barna? Hvar og hvenær?Með dagskrá eða án? Með gumsi eða bara vatn?

    Er ekki að fíla þetta hittleysi.

    Alls ekki.

    Svo þurfum við að halda mömmupartý fyrir þrjárnæstverðandi mæðurnar.
    Veit ekki hvort það er betra að slá því saman eða allt í sitthvoru lagi til að hafa fleiri afsakanir til að kýla í vömbina.

    DRAMATIKUR RULES!!!

    ...tíkin hefur talað!

    mánudagur, desember 10


    Ég var að taka eftir því að ég er með hræðilega ósexí mann-hendur!

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, desember 5


    Byrjaði í meðgöngujóga í gær og það var svolítið öðruvísi en ég átti von á. Það sem ég átti von á voru einhverjar heljarinnar bakkreppur og ómennskar líkamsbeygingar en í staðinn líktist þetta meira samkundu hjá Krossinum eða einhverju buddah-cult kannski frekar. Ég var látin tala við mitt "innra auga" og hlusta á drepleiðinlega jógafæðingarsögu og kyrja með einhverju stupid namjoholagi sem er ekki alveg minn tebolli ef ég á að segja eins og er. Ég er kannski ekki alveg þessi "spiritual" týpa eins og þið kannski hafið tekið eftir. Engu að síður hef ég ákveðið að gefa þessu séns og keypti mér einn mánuð af þessu drasli og ætla að leggja fullan metnað í nýju og endurbættu Jóga-Tinnu og tilefni þess ætla ég að hætta að vera alltaf að tala um það sem fer í taugarnar á mér (sem er mikið) og einbeita mér frekar að því að miðla jákvæðum bylgjum og hækka aldrei röddina meira en svona 4 desibil. En til þess að geta hafið þessa endurholdgun þarf ég bara að losna við örfá atriði úr systeminu fyrst:

    Ég þoli ekki að vera á kassa í Hagkaup og gellurnar stoppa til að pakka öllu sem ég er að kaupa í individual plastpoka og lengja þar með dvöl mína á kassanum fram úr öllu nauðsynlegu hófi!

    Ég haaaaaaata nýtilkomna fallega bláa landakortið sem prýðir húðina á maganum á mér og nálægum svæðum.

    Mér finnst auglýsinga/milli-dagskrárliða þemað á skjá einum óóóóóþolandi. Púmmb-dídsja-púmb-púmmb-damm! Búmp-tídsja-búmp-búmp! Já sæll, eigum við að ræða eitthvað þessi eiturlyf sem þið eruð greinilega að taka inn??

    Ég er gjörsamlega að verða brjáluð á sumu fólki í vinnunni minni, en það er svosum ekkert nýtt.

    Mig langar að saga af mér þessa tveggja tonna flóðhestaístru sem er að vaxa framan á mér, þó með þeim skilyrðum að það hafi hvorki skaðlegar afleiðingar fyrir mig né innihaldið... sénsinn.

    Ég get svo svarið það, ég er farin að fá appelsínuhúð á puttana! FYRIRGEFÐU... WHAT??

    Þroskahefta reykingafólk, hættið að stoppa beint fyrir utan innganginn í Kringluna og neyða mig til að labba í gegnum ykkar ógeðslega skítaloft. Er mikið mál að fara bakvið horn? Á ég að koma og prumpa á ykkur???

    Af hverju er ekki hægt að panta neinn mat heim nema eitthvað djöfulsins hamborgaraógeð eða pizzudrullu?? Af hverju eru bakarí ekki með heimsendingarþjónustu??? eða ísbúðir??? eða sjoppur???? HA? Og hvað ef mann langar bara í sellerí eða eitthvað?? Hvert á maður þá að hringja? Son of a *bleeep*

    Af hverju kemur ekki áfengislaus Tuborg Julebryg? Mig langar í svoleiðis :(

    Ég þoli ekki fólk sem er alltaf af nöldra!! Irony.is

    Bæ!

    Namjoho-rengekjo.... namjoho.....

    ...tíkin hefur talað!

    þriðjudagur, desember 4


    Dramatísk færsla á Bellabong!

    Tékk it

    ...tíkin hefur talað!