<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    föstudagur, júní 29


    Doldið fyndið...


    Orðabók konunnar:

    1. Allt í lagi

    Þessa setningu notar konur í lok rifrildis þegar þeim finnst þær hafa rétt fyrir sér,en vilja þagga niður í karlmanninum. ALDREI nota þessa setningu til að lýsa útliti konunnar. Það gæti komið af stað einu af þessum rifrildum.

    2. Fimm mínútur

    Þetta er hálftími. Þetta er jafngildi þeirra fimm mínútna sem eru eftir af leiknum eða þættinum sem hann er að horfa á í sjónvarpinu, eða tíminn sem það tekur hann að fara út með ruslið, svo henni finnst þetta sanngjörn skipti.

    3. Ekkert

    Þetta þýðir eitthvað og hann ætti að vera á tánum. "Ekkert" notar hún til að snúa honum um fingur sér, hann veit ekkert hvar hann stendur og getur ekki komið með nein mótrök. "Ekkert" kemur vanalega af stað rifrildum sem vara í "Fimm mínútur" og enda á "Allt í lagi".

    4. Gerðu það þá (með augabrúnirnar uppi)

    Þetta er ögrun. Sem endar með því að hún verður reið yfir "Engu", kemur af stað rifrildi sem stendur í "Fimm mínútur" og enda á "Allt í lagi".

    5. Gerðu það þá (engar augabrúnir)

    Þetta þýðir "Ég gefst upp, gerðu það sem þér sýnist". Samt endar þetta með rifrildi sem varir í "Fimm mínútur" og endar á "Allt í lagi".

    6. Hátt andvarp

    Ekki beint orð, en oft tekið sem slíkt. Það þýðir að henni finnst hann vera fífl og veltir því fyrir sér af hverju hún sé að rífast við hann í "Fimm mínútur" yfir "Engu".

    7. Lágt andvarp

    Eitt af því fáu sem hann skilur. Hún er róleg. Besti leikurinn er að hreyfa sig ekki og helst ekki anda.

    8. Oooh...

    Þetta orð í setningu veit á vandræði. Dæmi: "Oooh, láttu mig sjá um þetta" þýðir í raun að hann sé augljóslega ekki fær um að leysa þetta svo henni líki.

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, júní 27


    6-8. júlí

    Er ekki kominn fiðringur fyrir útilegu í liðið!? Það eru írskir dagar á Akranesi, hægt að lesa um þá hér. Það þarf ekki endilega að vera mikill kostnaður í því af því að það er bara hægt að taka strætó og losna þannig við bensín-og gangarkostnað... :)

    Svo er líka útilega háskólanema í Hallgeirsey, það sem var alltaf í Þórsmörk þar til fyrir nokkrum árum... Hægt að lesa um það hér. Það kostar 4900 kr fyrir alla helgina, tjaldstæði og svo er líka ball og fullt að gerast, ef það eru fleiri en 5 sem fara er hægt að díla um afslátt... :)

    líst ykkur eitthvað á þetta?

    ...tíkin hefur talað!



    Hversu freaky er það að ég hef amk 2x fengið vinaboð frá fólki á myspace sem virðist vera að safna Evum á vinalistann hjá sér?

    ...tíkin hefur talað!

    sunnudagur, júní 24





    You Are Trinity



    "Touch me and that hand will never touch anything again."

    ...tíkin hefur talað!

    laugardagur, júní 23


    Hafið þið einhvern tímann óskað ykkur að þið gætuð verið fluga á vegg í strákapartýi? Komiði bara í heimsókn til mín!

    Það er partý við hliðina á mér og ég heyri allt sem verið er að tala um, þar sem það er aðeins eitt lítið horn á milli baðherbergisgluggans hjá mér og eldhúsgluggans hjá nágrannanum... Á meðal umræðuefnis kvöldsins er allt frá eldheitum álversumræðum uppí "hvenær veit maður hvenær við erum orðin kærustupar?" umræða og fyllerískynlíf með smokk frá hans hlið, læknaheimsóknir, barneiginir og ýmislegt fleira skemmtilegt!

    Vildi bara deila þessu með ykkur, ætla ekki að eyða meiri dýrmætum flugaávegg-tíma á netinu... later!

    ...tíkin hefur talað!

    sunnudagur, júní 17


    Plan B... eða jafnvel plan C

    Eftir miklar umræður undanfarið við nokkra mismunandi aðila finnst mér tímabært að koma með smá innlegg hérna um ofannefnd plön þar sem þau virðast vera mjög vinsæl þessa daganna...

    Dæmi 1: Gaur hittir stelpu og deitar hana í nokkur skipti, gaur hittir svo fyrrverandi kærustu sína og tekur aftur saman við hana og hættir að deita stelpuna, en hringir svo aftur í hana þegar hlutirnir ganga ekki upp með kærustunni. Stelpa = plan B.

    Dæmi 2: Gaur fer á djammið og ætlar ekki einn heim. Í hvert einasta skipti sem hann fer á djammið er hann með plan A, plan B og plan C. Ef plan A gengur ekki upp tékkar hann á plani B, ef B gengur ekki þá er það hefur hann alltaf plan C...

    Dæmi 3: Gaur hættir með kærustunni sinni og hittir nýja stelpu. Þau verða kærustupar í stuttan tíma en hlutirnir ganga ekki upp. Gaurinn fer þá skríðandi aftur til fyrrverandi... Fyrrverandi = Plan B.

    Dæmi 4: Gaur fann ástina í lífi sínu en þau hætta saman. Hann á aldrei eftir að komast yfir hana en á samt góða "vinkonu". Nokkrum árum seinna segist hann vera kominn yfir kærustuna og vill
    reyna á hlutina með vinkonunni... Vinkonan = plan B?

    Dæmi 5: Gaur reynir við þig á djamminu kl 5 um morguninn... Hvað ætli hann sé búinn að reyna við margar stelpur fyrr um kvöldið? Þú gætir verið plan C eða D... eða kannski bara R eða S... hver veit?

    Fyrir mig að dæma þá finnst mér ekki mjög eftirsóknarvert að vera annað en plan A... og finnst mér að enginn ætti að sætta sig við minna en það. En það er bara mín skoðun :)

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, júní 13


    700 dátar...

    Ákváðu að koma til Reykjavíkur í tilefni af afmælinu mínu. Bandaríski, spænskir og þýskir.

    Þessir þýsku er mín sérgrein þar sem ég tala málið, og sértaklega þar sem skipið er frá Sachsen. En ég bjó ákkurat í Sachsen Anhalt sem er þarna á milli, Sachsen, Sachsen-Anhalt og Nieder-Sachsen. Og það skip leggst ákkúrat á Miðbakkann þannig að við verðum practicly nágrannar!

    Vil nota tækifærið og minna á afmælið mitt næstu helgi.
    Allar sem bindi og vindlingi geta valdið mæti á Séstvarlagötum kl 21: 07 laugardaginn 16. júní.Fyrrnefnt plan stendur enn svo eru það bara draumadátar fram á nótt

    ...tíkin hefur talað!

    mánudagur, júní 4


    Mikill skortur er á ungum konum í Færeyjum

    Mikill skortur er á ungum konum í Færeyjum samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu eyjanna. Þannig eru 13% færri konur en karlar á aldrinum 20-24 ára og 11% færri á aldrinum 20-39 ára.

    Á færeyska vefnum kveik.fo segir, að um 900 færri konur en karlar séu á þessum aldri og nærri 2000 færri konur á aldrinum 20-64 ára.

    Það er ekki fyrr en komið er á áttræðisaldurinn sem þessi mynd breytist.

    Þann 1. janúar voru Færeyingar 48.350 talsins, þar af 25.135 karlar og 23.215 konur.

    Hóphelgarbjörgunarleiðangur íslenskra einstakra kvenna til Færeyja

    • Hópstjórar Eva og Bella
    • Lagt af stað frá Rvk á föstudegi. Heim á sunnudegi. Nægur tími.
    • Lítið sofið, mikið djammað
    • FærEyjar 2007 yrði góður undirbúningur fyrir Eyjar 2007

    Áhugasamar skrái sig í komment hér fyrir neðan.

    ...tíkin hefur talað!