<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    mánudagur, nóvember 26


    No respect!

    Í spjalli við Siggu Daney um daginn sagði hún mér að í Frakklandi væri borin alveg gríðarleg virðing fyrir óléttum konum og þeim sýnd sérstök tillitsemi eins og t.d. í strætó, þar standa allir upp og gefa óléttu konunni sætið sitt, líka gamla fólkið. Mér fannst þetta sniðugt og soldið over the top kannski, ég meina maður er nú ekki við dauðans dyr þó maður sé nokkrum kílóum þyngri og persónulega myndi ég ekki vilja að einhver gömul kona myndi fórna sætinu sínu í strætó fyrir mig. Alla vega fannst mér þetta soldið silly þegar hún sagði mér þetta á sínum tíma.

    Engu að síður fór ég að hugsa slatta um þetta eftir þetta samtal því sem lengra líður á meðgönguna verður maður óneitanlega þreyttari við hina minnstu áreynslu og svona litlar sálir eins og ég eigum það til að vorkenna okkur heil ósköp. Þó ég hafi verið algjör töffari fyrstu mánuðina og þoldi ekki þegar einhver karlagimp voru að láta með mig eins og fatlafól og bjóðast til að bera fyrir mig kassa sem voru 300 grömm þegar ég var fullfrísk þá fúlsa ég aldeilis ekki við hvers kyns aðstoð sem mér er boðin í dag, hversu lítil sem hún er og skammast mín lítið sem ekkert. Ég vil samt taka það fram að ég ætlast ekki til að fá einhverja special treatment neins staðar en ég er alltaf voða glöð þegar hún býðst.

    Það sem hins vegar fer alveg fyrir brjóstið á mér er að hér á Íslandi, þar sem mannasiðir eru af skornum skammti, þá ekki einungis fær maður ekki special treatment, heldur öfugt ef eitthvað er! Ég hefði ekki trúað sumu upp á fólk nema af því ég er sjálf að lenda í því og sjá það með eigin augum að Íslendingar er upp til hópa fífl þegar kemur að ókunnugum. Ég hef verið Hagkaup á leiðinni á kassa með litla körfu með kannski 10 hlutum í. Ég hef átt 3-4 skref eftir að kassanum þegar manneskja sem var líka á leiðinni að kassanum "gefur í" og hraðar sér til að ná á undan mér! Ég verandi á hraða snigilsins tapa því iðulega í þessu kapphlaupi. Þetta hefur gerst oftar en einu sinni, true story.

    Önnur true story gerðist einmitt í Hagkaup í Skeifunni um daginn. Hver sá sem óléttur hefur verið veit að því meira sem bumban stækkar því minni verður pissublaðran. Ég þarf næstum að eiga pissustopp hvar sem ég kem, sem er óþolandi. Ég var einmitt stödd í fyrrnefndu Hagkaupi þegar slíkt gerir vart við sig og ég fór og leita að klósetti. Þegar ég fann það var það upptekið þannig að ég beið róleg eftir að viðkomandi kláraði. Á meðan ég stend þarna kemur dama aðvífandi og labbar að hurðinni og tekur í húninn en það var auðvitað læst. Svo bara tekur hún sér stöðu fyrir utan og lætur eins og hún sjái mig ekki. Ég alveg í spreng verð mjög pirruð inní mér en segi ekki neitt (ákvað að leyfa henni að njóta vafans þangað til glæpurinn yrði endanlega framinn). Svo viti menn, hurðin opnast og hún treður sér inn. Ég stend gapandi fyrir utan og á meðan ég er að ákveða hvort ég eigi að banka á hurðina eða bíða með að berja hana þangað til ún kemur út koma tvær aðrar dömur og stilla sér líka upp fyrir framan hurðina og bíða. Ég alveg brjál (minni á að mér var mjööög mál) og færi mig nær svo það fari ekki á milli mála að ég sé að bíða eftir klósettinu og hverjum þeim sem ryðjist fram fyrir mig bíði ekkert nema opinn dauðinn. Nema hvað, þegar hurðin loksins opnast eru þær ekki lengi að rjúka til og konan fékk varla að koma út áður en þær ruddust inn fram fyrir mig. Ég held að ég þurfi ekki að segja ykkur hvernig andlitið á mér varð á litinn! Halló góðan daginn! Á öllum af þeim skemmtistaðaklósettum sem ég hef verið stödd á seint um nótt innan um mjög ölvaðar íslenskar beyglur hef ég aldrei séð slíka frekju! Og þar var ég EKKI með bumbu út í loftið á stærð við meðalstóra plánetu. Ef ég hefði verið fær um það þá hefði ég lamið úr þeim allar tennurnar og slitið af þeim hnéskeljarnar og látið börnin þeirra horfa á! Fkn mellur.

    Ég sendi þeim líka eins illa strauma og ég gat og ef ég hef einhvern vott af yfirskilvitlegum hæfileikum munu þær deyja úr krabbameini með dass af syfilis og graftarkýlapest innan fárra mánaða. Sama gildir með alla hina fávitana sem í framtíðinni ryðjast fram fyrir mig á meðan ég er í þessu ástandi.

    Takk fyrir og veriði bless.

    ...tíkin hefur talað!

    mánudagur, nóvember 19


    Samhengislaust blogg í boði Tino

    Jeijjj jólin eru að koma og ég get ekki beðið. Reyndar er G-thug hættulega nálægt því að skemma stemmarann með ótímabæru sáðláti á jólalögin, en ég ætla bara að forðast vinnustöðina hennar í svona 10 daga í viðbót, þá sleppur þetta. En ég held að sama hvað þá gæti hún ekki skemmt þetta fyrir mér því ég er með svo mikið að hlakka til að það er ekki fyndið. Við nefnilega vorum að festa kaup á the most beautiful íbúð ever og vorum rétt í þessu að skrifa undir samninginn og fáum afhent 15.des. Reikna fastlega með að innheimta hárgreiðslu- og förðunarskuldir í skiptum fyrir kassaburð í kringum þann tíma þannig að verið búnar að versla jólagjafir og slíkt tímanlega :) hahahaha. Markmiðið er sem sagt að vera flutt fyrir jól en þurfum samt ekki að afhenda okkar fyrr en 15.jan þannig að það er nægur tími fyrir leiðinlega hluti eins og geymslutæmingu og þannig viðbjóð, ætli ég skilji það ekki bara eftir handa Brynjari á meðan ég ætla að bera fyrir mig óléttuverkjum...

    Svo næst á dagskrá fyrir utan flutning og hátíðahöld er auðvitað fæðingarorlofið. Stefni að því að reyna að vinna sem næst að settum fæðingardegi sem er 31.jan til að eiga sem mest orlof eftir að lilla er komin í heiminn, því seriously, 6 mánuðir.... er þetta eitthvað grín eða?? hvað á maður að gera við 6 mánaða gamalt barn? Ekki fær maður inn á leikskóla og það er seriously asnaleg tilhugsun að fara að skilja barnið sitt eftir hjá einhverri dagmömmu allan daginn. Ég fékk alveg besta komment ever um daginn frá ákveðnum samstarfsmanni mínum. Hann fór að spyrja mig út í hvað ég ætlaði að gera work-wise þegar krakkinn kæmi. Ég sagði honum að fyrstu mánuðina ætlaði ég að vera í burtu alveg fulltime en svo myndi ég kannski fara að vinna heima hluta úr deginum og reyna að púsla þessum skitnu 6 mánuðum í eitthvað nothæft. Þá leit hann svona á mig með svona ææææjjjiii augnaráði og fór að segja mér hversu mikilvægt það væri að deila miklum tíma með börnum sínum fyrstu árin og hvað þau væru að mótast mikið og að það væri miklu betra að þau væru að fá áhrif frá foreldrum sínum en ekki einhverju fólki úti í bæ eða ópersónulegum stofnunum (væntanlega að meina leikskóla eða?). Konan hans hefðu sko verið fyrstu 4 árin heima með börnin þeirra og blablabla. Já... einmitt... þú herra framkvæmdastjóri með fjórföld launin mín að segja þetta við mig er eins og ég myndi labba upp að barni í Sómalíu og hrista hausinn yfir lörfunum sem þau væru í og fara að predika yfir þeim mikilvægi þess að leyfa sér öðru hvoru að kaupa sér ný föt því það væri svo gott fyrir sálina að líta vel út! Eins og ég sem venjulegur Íslendingur skuldsettur út ævina við að reyna að eiga heimili fyrir mig og fjölskylduna og öhh... MAT, hafi einhvern séns í rassgati að fara að taka mér 4 ÁRA FRÍ frá vinnu til að dúlla mér heima með börnunum, þó að ég vildi óska að svo væri??? Ertu eitthvað þroskaheftur félagi? Einmitt, af því við búum líka í þannig samfélagi að fólki sem er að reyna að stofna fjölskyldu er gert svo auðvelt fyrir. Akkúrat! Alltaf verið að skerða allt, barnabætur, vaxtabætur, og svo af því að ég og Brynjar erum ekki einhverjir svindlara aumingjar sem nennum að standa í því að skrá okkur í fake-ekki-sambúð eða svíkja-undan-skatti plebbar þá fáum við síðast af öllum inn á leikskóla og þykjum með nógu háar tekjur til að eiga ekki skilið neinar bætur for nothing. 4 ár my ass!

    Talandi um ASS. Sá feita fleskið hann Aron Pálma í búð um daginn. Alveg magnað hvað það er látið mikið með þennan mann. Aron Pálmi er kominn með kærustu - Aron Pálmi vinnur með fötluðum börnum - mamma hans Arons Pálma er komin! Whutt??? So??? Vissuð þið að ef þið tækjuð fötin hans Arons Pálma og bútuðuð þau niður í smærri einingar þá væri hægt að klæða hálfa Eþíópíu?? Sama má segja um hádegismatinn hans! Af hverju er enginn að skrifa um það? - Aron Pálmi og danski kúrinn! - hvenær kemur eiginlega þessi fyrirsögn?

    nóg pirr í bili, þarf að halda áfram að vinna. Djö! :)

    ...tíkin hefur talað!

    þriðjudagur, nóvember 13


    Hugmundur 3

    Hann er reyndar stolinn og endurtekinn.

    Ég var að renna í gegnum fataskápinn minn. Endurraða og snurfusa og svona. Og tók þá eftir nokkrum fatagörmum sem ég er komin með leið á og langar að henda. Sumt hef ég nánast aldrei farið í. Bara keypti og fattaði svo að þetta fór mér bara alls ekki.

    En þá var ég að spá. Hvort við gætum notað það sem afsökun fyrir hittingi, slúðrelsi og ofáti?
    Eins og við ætluðum að gera einhvern tímann. Hvort sem við komum með 2 flíkur sem við erum hættar að fíla. Eða passa. Eða 27 flíkur.

    Verður samt smá standard á þessu. Eins og í Skósöfnun Rauða Krossins. Allt götótt, blettótt og slitið er vinsamlega afþakkað.
    Einhver hjálpræðisfífl eða battered wifes geta fengið það á fatagjafastöðum útí bæ.

    ...tíkin hefur talað!

    sunnudagur, nóvember 11


    Jóla, jóla

    Nú eru jólin farin að nálgast óðfluga.

    Ég er með tvo hugmunda.

    Hugmundur 1

    Keramik fyrir alla. Hægt að panta tíma þar. Og velja keramik til að mála. Öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Og mar þarf ekki að þrífa og neitt rugl. Hægt að panta pizzu þar og sollis. Eða bara skella sér á nálægt kaffihús eftir föndur. Veit ekki hvað gamlir krakkar þurfa að vera til að mála svona. En annað hvort gætum við bara tekið stóra krakka með. Nógu stóra. Eða bara vera við skvísurnar að láta listræna hæfileika okkar að fá að njóta sín í nokkra tíma með dassi af slúðri.

    Hugmundur 2

    Piparkökubakstur og piparkökulist. Heima hjá einhverjum. Skiptir ekki máli. Var ógeðslega gaman í fyrra og verður örgla ekki leiðinlegra núna. Svo er þetta eitthvað sem alveg smjattpattar niður í eins árs og bollupattar upp í þrítugt geta fiktað við og unað sér vel.

    Annað hvort er hægt að gera bæði eða annað hvort.

    Endilega bara gubba því út úr sér í kommentum hvort einhver stemning sé fyrir þessu.


    ...tíkin hefur talað!

    þriðjudagur, nóvember 6


    Héðan er allt hmphfrhnj að frétta.

    Allt í sparsli og ryki og leiðinlegt að vera heima hjá sér. Mathieu ætlar nú samt að reyna að klára þetta og mála stofuna í fyrir næsta mánudag. Vona að það náist. Hann mun allavega hafa frið til þess þar sem ég ætla að skella mér til Parísar næstu helgi að heimsækja hana Lilju Evu vinkonu, og hann Ghislain Evu kærasta. (hann vill allavega meina það að þau séu ment tú bí saman sko).


    Hlakka alveg hryllilega mikið til að komast þangað. Marseille er nefninlega ekkert svo spennandi þegar það er ekki nógu heitt til þess að fara á ströndina...

    Fólkið hérna er afskaplega skrýtið. Allir eru besti vinir þínir í fyrstu ca. 24 tímana sem maður hittir það og svo er það bara búið! Og svo bara eitthvað furðulegt baktal eins og maður sé aftur orðinn 8 ára. Vil taka það fram að Mthieu er alveg sammála mér í þessum málum, bara svona svo þið haldið ekki að ég sé bara að segja þetta af biturleika vegna þess að fólki líkar ekki við mig. Fólki má sko alveg ekki líka við mig. Það pirrar mig ekkert svakalega. (Lier, lier, pants on fire) Það er bara óþolandi hvað allir taka þátt í þessum þykjast + baktal skrípaleik. Í París þá segir fólk það a.m.k. bara hreint út (eða svona nánast) ef það er ekki að konnekta við þig. Amms.

    Og svo eru allir alltaf svo reiðir hérna! Ég hélt einmitt einhverneveginn að nálægðin við sjóinn og sól 360 daga á ári hefði þau áhrif að allir væru voða ligeglad alltaf. Not the case. Það eru allar öskrandi allsstaðar þar sem maður fer. Ótrúlegt. Og að ég tali nú ekki um fjölskyldu míns heittelskaða! Þau eru spinnegal! Bjóða manni í mat og spilakvöld og fara svo öll í fýlu afþví einn vildi spila í eldhúsinu og hinn í stofunni og þessi gekk ekki frá mjólkinni og svo er bara öskrað og öskrað (á há cé-inu) þangað til gestirnir flýja. (Eftirá að hyggja sé að kannski vildu þau bara losna við okkur af því við erum svona agalega leiðinleg... :Þ) En ég er sko að tala um fullorðin fólk hérna. Frá aldrinum 29 (held ég) og að ganga 60! Gaman að þessu.

    Aðalbömmerinn er samt að núna loksins höfum við nóg pláss til að bjóða fólki í dinner og svoleiðis heim til okkar, en við bara höfum engum að bjóða! Allt skemmtilega fólkið sem við þekkjum er í París.


    Ok, nóg af kvarti og kveini.

    Svona miðað við aðstæður þá erum við Mathieu samt voða happy. Sem betur fer þá getum við verið endalaust saman bara 2 án þess að okkur leiðist of mikið. Gott mál.

    Og svo er nú einhver slatti af fólki að koma í heimsókn til okkar fljótlega. Ghislain og Annabelle (vinir) ætla að reyna að kíkja fyrir jól og svo líka Jackie og Phil kærastinn hennar. (Það segir samt ýmislegt þegar ég hlakka virkilega til að fá Jackie í heimsókn, eh Tinna ;) )

    Svo eru einhverjir vinir Mathieu sem búa ekki of langt í burtu sem ætla líka að reyna að kíkja. Voða gaman semsagt.

    Ég er náttla búin að missa alla von um að þið bumbur kíkið, og fyrirgef ykkur það svosem alveg. :D


    Eitt hérna sem ég hef tekið eftir hérna í Marseille sem mér finnst nokkuð spes; í götunni minni frá númeri ca 50 til 150 eru hvorki meira né minna en 8 hárgreiðslustofur! Og í borginni allri eru þær hreinlega út um allt! Bakarí – hárgreiðslustofa – slátrari – hárgreiðslustofa – banki – hárgreiðslustofa – kaffihús – hárgreiðslustofa...

    Ég fór náttla strax að horfa aðeins í kringum mig, svona að tékka á því hvort að Marseille búar væri eitthvað fallegri um hárið en annað fólk en ég hef ekki tekið eftir neinum marktækum mun. Ég hef því komið upp með þá kenningu að hárgreiðslustofur séu svona « front » fyrir Marseilleísku mafíuna og að í skjóli hárbursta og hárblaára fara fram vægast sagt ólegleg viðskipti með kókaín (og ansjósur), Sem útskýrir nefninlega líka hvað allir eru skapstökkir (og andfúlir) hérna. Þar hafiði það. Aðrar hugmyndir um ástæðuna á bakvið þennann ótæpilega fjölda hárgreiðslustofa hér í Marseille eru þó vel þegnar.


    Annað. Ég hélt að það væri mikill hundaskítur í París. Miðað við Marseille þá er París eins hrein og innaníið í uppþvottavél. Það er skítur út um allt hérna. (Hingað til þá hef ég ekki verið það óheppin að stíga í áðurnefndan skít (7, 9, 13), en ég er komin með króníska vöðvabólgu á því að vera alltaf að horfa niður fyrir mig. Þetta veldur því einnig að ég á í miklum erfiðleikum með að rata um borgina þar sem allar gangstéttir líta svipað út. )

    Til að toppa ógeðið þá hafa einhverjir hundaeigendur einkað sér ca. 100 fermetra grasbala í nágrenni við íbúðina okkar, þar sem þeir fara með hundana sína og leyfa þeim að skíta. Þetta fólk telur sig örugglega mjög pent og siðmentað að láta hundana sína ekki skíta á gangstéttirnar, en einhverra hluta vegna þá gerir það sér ekki grein fyrir því að ef 100 hundar koma saman á sama 100 fermetra grasbalann dag eftir dag til að skíta þá skapast af þvi ólykt sem ekki eru til orð til að lýsa. Bætið svo 20 graðu hita í þessa jöfnu og útkoman er...........

    Get ekki og vil ekki ímynda mér hvernig þetta er á sumrin þegar hitinn fer upp í 35-40 gráður. Jakk.


    Nóg neikvæðni í bili. Scheize hvað það er gott að blása svona aðeins út. :D

    Hlakka vangefið til að koma heim um jólin og hitta normal fólk (sem rífst ekki all the f***ing time) og borða normal mat (þ.e. ekki með ansjósum) og gera normal hluti. Je.

    Gæti það verið að þessi útlandabaktería í mér sé að batna?

    ...tíkin hefur talað!

    sunnudagur, nóvember 4


    Jæja dömur eigum við að fara á jólahlaðborð?



    Einhver sérstakur staður sem ykkur langar að fara á... eða langar ykkur kannski ekki að fara?



    Mig langar að fara í skíðaskálann eða Viðey - hef aldrei farið þangað...



    Eigum við að taka maka með eða ekki?



    EF við ákveðum þetta, reynum þá að finna tíma sem fyrst ;)



    ...tíkin hefur talað!