<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    þriðjudagur, febrúar 27


    Ókei ég vissi að ein ákveðin barnsmóðir gengi ekki alveg heil til skógar en hversu mikið uppá vantaði vissi ég ekki fyrr en nú. Ókei hvað finnst ykkur? Höfum þetta í semi-dulmáli til að vernda sakleysingjana eða whatever.

    Verið er að halda uppá ákveðna kirkjulega athöfn fyrir sameiginlegt barn. Annað foreldrið býr erlendis en er tilbúið að borga helming í öllum kostnaði við atburðinn og krefst þess ekkert endilega að fá að ráða miklu er varðar atburðinn. Nota bene mikil smámunasemi virðist hafa ráðið því hvað telst kostnaður við atburðinn og er t.d. kostnaði á klippingu, sokkum og nærbuxum skipt hnífjafnt til helminga. "Íslandsforeldrið" ákveður allt er varðar atburðinn án þess að spyrja erlenda foreldrið nokkurs og sendir svo tölvupóst þar sem það fer frammá að foreldrið sem býr erlendis borgi "Íslandsforeldrinu" tímakaup fyrir undirbúninginn þar sem "erlenda" foreldrið kemur ekki til með að taka fullan þátt. Döhh það er erlendis!! Tek það líka fram að aðeins tæp 15% þeirra sem viðstaddir verða atburðinn koma frá "erlenda" foreldrinu, restin er frá "Íslandsforeldrinu" en samt sem áður er kostnaði skipt í flestum tilvikum til helminga, einungis kostnaði við veitingar við umræddan atburð er skipt hlutfallslega. "Erlenda "foreldrið kemur auk sameiginlegs kostnaðar til með að borga rándýrt flugfar til að vera viðstatt atburðinn. Finnst ykkur "Íslandsforeldrið" ekki pínku kúkú eða er það bara ég???

    ...tíkin hefur talað!



    Jæja,
    Það er komið að djammpjásu.

    Er einhver með mér í að gera eitthvað ódjammvænt næstu helgar... það má samt alveg include-a bjór eða rauðvín sko. Bara ekki djamm. Ég þarf að spara. Bæði heila og lungu. Og svo í buddu og hinni buddunni.

    Ég og Eva og Tinni vorum komnar með nokkrar ágætar hugmyndir af djammfríum skemmtunum. M.a.:

    Náttfatapartý
    Skautar
    Skíði
    Sundferð
    Gönguferð
    Grillferð
    Sumarbústaður

    Einhver til í eitthvað af þessu næstu daga, vikur og mánuð?

    ...tíkin hefur talað!

    mánudagur, febrúar 26


    Tékkit out jó, sjáiði hver er skráður í keppnina 1.mars?? á maður að mæta eða hvað?

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, febrúar 21


    1. Hefuru slegið einhvern moðerfokker í andlitið?
    2. Hve gamall/gömul ertu
    3. Frátekin/n eða einstök/stakur ?
    4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?5.
    Dreymir þig blauta drauma á nóttunni?6.
    Hefuru séð lík?
    7. Hefuru óskað þess að einhver deyi án þess að þú sért að fara erfa auðæfi hans?
    8. Ertu að fíla Ariel Sharon?

    Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.

    9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of létt?
    10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?
    11. Treystiru fíkniefnalögreglunni?12.
    Hlustaru á kántrí?13.
    Hver er þín fyllsta minning sem þú manst eftir að hafa átt með mér?
    14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
    15. Myndiru deita mig eða droppa mér eftir one night stand?
    16. Í hverju sefuru ekki?
    17. Hefuru pissað í sundlaug?
    18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
    19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ ekki gera með mér í dag?
    20. Hvað finnst þér best um mig?
    21. Ég er fokkin hot
    22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
    23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
    24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
    25. Ekki endurpósta þessu svo ég þurfi ekki að svara þér.

    ...tíkin hefur talað!

    fimmtudagur, febrúar 15


    Sælar dömur...
    þið fenguð allar póst frá mér í gær... af vinnumailinu... þannig að þið sem eruð með hotmail kíkið í junkmail... (hotmail, junkamil... gott rím!)

    Mig sárvantar svar sem fyrst... þið sem fenguð ekki maili... hafið samband :) gudny@selecta.is


    knúz&kram

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, febrúar 14


    Sko, love ain´t that grand. Ástin er ekki bara bleik blóm, blautir kossar og væmnar bíómyndir.
    Ástin er andfýla. Ástin er hrjúfir skeggbroddar. Hún er líka óhreinn þvottur. Skítugt gólf. Hún er tuð. Hún er röfl hún er andlaus. Þreytt. Þreytandi. Kröfuhörð. Hún er m.a.s. rassahitamælir. ( já ég hef þurft að hitamæla kærasta) Og á þessum degi er hún aðallega peningaplokk verslunar - og veitingahúsamanna.
    Ástin er bara ekkert það merkileg. Hún kemur og hún fer. Maður tekur varla eftir henni fyrr en hún er farin.

    ...tíkin hefur talað!

    laugardagur, febrúar 10


    Blúshátíð í Reykjavík 3.-6. apríl nk.... einhver hér sem hefur áhuga á því?

    http://midi.is/tonleikar/1/4742

    ...tíkin hefur talað!