<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    þriðjudagur, október 23


    Gefast upp blogg

    Eða svona næstum því.

    Það eina jákvæða við þessa ömurlegu viku er að ákveðin Berglind sem ákveðin Sigríður var Au-Pair hjá út í Frakklandi er að tala á Málstofu á morgun.

    Ég get dundað mér við að ekki hlusta á hana og rifja upp gamlar minningar þegar dagarnir voru einfaldir og áhyggjulausir.

    Klassík:

    Vyklarnir lirka ekki!
    Leigubílstjórinn/Stalker

    ...tíkin hefur talað!

    fimmtudagur, október 18


    I like it
    Tekið af visi.is

    Ungar stúlkur gefa ökuníðingum litla fingurinn. Virkar vel.

    skrifar:

    Ástralir hafa hrundið af stað herferð gegn hraðakstri, sem virðist virka á unga menn. Stúlkur eru hvattar til að gefa þeim litla fingurinn, og er þar verið að vísa til fjölskyldudjásna þeirra. Það hefur lengi verið grínast með að því stærri bíl sem karlmenn frá sér þeim mun minna sé.....þið vitið. (ójá ég veit sko hvað þú meinar óli!)

    Í sjónvarpsauglýsingum í Ástralíu eru ungar stúlkur sýndar gefa hraðaksturskónum litla fingurinn. Og stúlkur eru hvattar til þess að gera það sama á götum úti þegar þær mæta einhverjum reykspólandi fávita. Könnun á virkni herferðarinnar bendir til þess að 60 prósent ungra karlmanna taki þetta nærri sér.

    Danska blaðið Nyhedsavisen segir frá þessu og talar við danska mannfræðinga og sérfræðinga danska umferðarráðsins. Allir eru hrifnir af þessu framtaki Ástrala.



    I must say Carstairs að ég er að fíletta líka.

    Upp með litla puttann stelpur!

    ...tíkin hefur talað!

    fimmtudagur, október 11


    Jahá!

    Contrary to popular belief þá getur leynst þónokkuð samhengi milli þess að vera fallegur og vera með massívt body odor. Spyrjið bara portúgalska smjörlíkið í vinnunni minni. Hann labbaði framhjá mér og eftir það þurfti ég að fara og láta meta mig sem 75% öryrkja. Ligg núna á Lansa í öndunarvél, líðan eftir atvikum. Fóstur sakaði ekki.

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, október 10


    ...tíkin hefur talað!



    Sælar dömur.

    Það er kannski kominn tími til þess að setji eitthvað hérna inn – ég er ekki sú duglegasta við þetta. Ég blogga samt alltaf í hausnum á mér ef ég hef eitthvað skemmtilegt að segja. Vandamálið er bara það að um leið og ég er búin að því þá hef ég enga þörf fyrir að skrifa bloggið niður. Er búin að koma þessu frá mér – til mín, og það virðist vera alveg nóg.

    Anyways, er allavega komin með internetið núna, síðan í fyrradag, og lífið hérna í Marseille er því að verða normal ef svo má segja. :) Mathieu var að verða vitlaus á mér, ég hafði ekkert að lesa, ekki netið, þekki engann hérna og var kannski svolítið pirrandi. “Mathieu, mér leiðist. Þetta er leiðinleg mynd. Nennirðu ekki að horfa á hana með mér? Kadda gera? Má ég líka. Hættu að spila á gítarinn og koddu að leika! Á ég ekki bara að elda? Farðu þá út í búð...”
    Agalega skemmtilegur sambýlingur. En hann semsagt þarf ekkert að hafa fyrir mér núna þar sem ég er nettengd og búin að downloada nóg af drasli til þess að halda mér upptekinni fram að jólum! :)

    Þessar fyrstu vikur hérna í Marseille eru búnar að líða ansi hratt samt. Hreiðurgerðin, þ.e. IKEA ferðir, HABITAT ferðir, uppsetning á dóti, skrapa af veggfóður og þrífa, hefur verið á fullu, en síðustu ca 10 daga hefur lítið gerst þar sem við erum að bíða eftir mussjur rafvirkja. Við erum nefninlega bara með rafmagn á u.þ.b. hálfri íbúðinni og við getum ekki byrjað að mála og svoleiðis fyrr en hann er búin að koma og laga það. Eins og er þá elda ég við lampaljós, skít við lampaljós og fer í sturtu við lampaljós. Var rómó í ca. 24 tíma en er núna freeeekar pirrandi.
    En hann kemur víst á morgun þannig að við ættum að fara að getað byrjað á þessu öllusaman um helgina.
    Svo byrjar skólinn hjá mér á mánudaginn og mér líst bara nokkuð vel á þetta eins og er. Fór og hitti skólastýruna í gær og hún er ekki “gömul þurrkunta á powertrippi sem hefur ekki fengið í hana í allt of langan tíma” eins og skólastýran í París. Sem er gott. ;) Og svo sýnist mér að fólkið í skólanum hérna sé aðeins eldra en fólkið í París, og meiri stemning fyrir því að gera eitthvað saman. Sem er líka gott. Ég nefninlega þarf að finna mér eins og einn vin/vinkonu skiljiði ;) Það væri allvega ekkert verra.

    Annars er ekki rassgat að frétta þannig lagað. :/
    Erum búin að kaupa/panta svefnsófa sem kemur eftir 5 vikur (fingers crossed) og fyrsta manneskjan (fyrir utan mömmu hans Mathieu sem kántar ekki) sem kemur í heimsókn til að vígja hann fær ógeðslega fáránlega mikið af fríum bjór í verðlaun og réttinn til að skíra nýju þvottavélina mína sem er eina vinkona mín þess dagana.
    (Er það ekki annars nokkuð sorglegt að hoppa hæð sína af gleði og knúsa þvottavélina eins og hún væri e-r long-lost friend fyrir framan deliverygaurana?) :Þ

    Eitt í viðbót, áður en ég segji þetta gott í bili; um leið og við fáum heimasímatenginguna okkar þá verðu það FRÍTT fyrir mig að hringja í heimasíma þannig að Tinna og Eva, vinsamlegast fáið ykkur einn slíkann!

    Gott í bili.

    Amour for you all ;)
    Sigga D

    P.s. ætla að reyna að setja mynd af nýja "thank god for IKEA" draslinu okkar inn líka en þar sem ég er informaticly challanged þá skulum við bara sjá til hvort það text. :Þ

    ...tíkin hefur talað!

    miðvikudagur, október 3


    Hugmundur 2


    Veit að þetta er of snemmt en ég verð að hafa eitthvað til að hlakka til. Er einhver stemning í gangi fyrir því að hafa aftur jólaföndur eða piparkökubakstur (eða bara einhverjar smákökur).

    Það var ógó gaman síðast fyrir þá sem misstu af því. Og núna eru komnir enn fleiri krakkar til að hafa gaman að þessu.

    Eníhú... ætla ekkert að plana neitt meira í bili þar sem það er vel langt í þetta

    Jólahlakkkveðja,

    JólajólaBella

    ...tíkin hefur talað!

    þriðjudagur, október 2


    Hugmyndur

    Bústaðarferð! Hverja langar ekki í svolis á næstunni? Mig klæjar í eyrnasnepplana mig langar svo í bústaðaferð með uppáhaldsstelpunum mínum! Grilla góðan mat! Tjilla í pottinum með kokteila (óáfenga fyrir bumbulínur) eða léttvín jafnvel. Spila og kjafta og sukka og slúðra og leika langt fram á rauða nótt!

    Þetta er fljótfærnishugmynd, er ekki einu sinni með bústað til aflögu. En það er alltaf hægt að leigja svoleiðis og kostar ekki mikið ef við erum nokkrar... :)

    Hvernig líst ykkur á?

    Ívz

    ...tíkin hefur talað!