ég hlakka svoooo til að sjá ykkur í kvöld beiblurnar mínar!
...tíkin hefur talað!
þriðjudagur, september 11
Ég var ansi þreytt þegar ég lagði af stað í vinnuna í morgun. Var óvenju aktíf í gærkvöldi miðað við aldur og fyrri störf. Fór m.a. í sund, gítartíma og svo loks að hjálpa brósa í íbúðinni frameftir öllu. Var að staulast heim um hálf eitt og ekki komin í háttinn fyrr en rúmlega 1, gjörsamlega búin á því. Á meðan ég ek geispandi eftir Eiðsgrandanum hringir síminn minn allt í einu.
Það er þá sem ég fatta að ég hafði skilið Brynjar eftir heima...
True story!
...tíkin hefur talað!
mánudagur, september 10
Helló my dears.
Ég ætla að halda smá dinner/póker/djamm boð á föstudaginn næsta svona til þess að ná að hitta ykkur allar áður en ég ég fer aftur út.
Dagskrá kvöldsins verður sem hér segir: :D
-Koma (þær sem ekki komast láta mig vita) -Drekka fordrykk (þær sem vilja óáfengt láta mig vita) -Borða fisk (þær sem borða ekki fisk láta mig vita) -Drekka vín (er nóg að kaupa kók light og pepsí max handa þeim sem vilja ekki vín?) -Kenna Bellu að bera fram frönsk nöfn -Spila póker ef áhugi er fyrir hendi (passið ykkur á Stefí, hún er pro...) -Borða desert -Fara á trúnó við ykkur allar og segja ykkur hvað ég elshka ykkur mikið -Sannfæra ykkur allar um að koma að heimsækja mig til Marseille -Hoppa soldið -Drekka bjór/G&T -Fara í bæinn -Dansa -Bíða í leigubílaröð í tæpa 2 tíma -Drepast (mjög mikilvægt er að þessi dagskrárliður verði síðastur -ég treysti á ykkur að passa upp á mig!)
Ykkur er að sjálfsögðu frjálst að sleppa þeim dagskrárliðum sem þið viljið. (Nema þessum um að láta sannfærast um að koma að heimsækja mig)
Vona að sem flestar komist.
Luv, Sigga D
...tíkin hefur talað!
sunnudagur, september 2
Mér finnst þetta endalaust fyndið.. Sérstaklega endirinn..