<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    mánudagur, nóvember 19


    Samhengislaust blogg í boði Tino

    Jeijjj jólin eru að koma og ég get ekki beðið. Reyndar er G-thug hættulega nálægt því að skemma stemmarann með ótímabæru sáðláti á jólalögin, en ég ætla bara að forðast vinnustöðina hennar í svona 10 daga í viðbót, þá sleppur þetta. En ég held að sama hvað þá gæti hún ekki skemmt þetta fyrir mér því ég er með svo mikið að hlakka til að það er ekki fyndið. Við nefnilega vorum að festa kaup á the most beautiful íbúð ever og vorum rétt í þessu að skrifa undir samninginn og fáum afhent 15.des. Reikna fastlega með að innheimta hárgreiðslu- og förðunarskuldir í skiptum fyrir kassaburð í kringum þann tíma þannig að verið búnar að versla jólagjafir og slíkt tímanlega :) hahahaha. Markmiðið er sem sagt að vera flutt fyrir jól en þurfum samt ekki að afhenda okkar fyrr en 15.jan þannig að það er nægur tími fyrir leiðinlega hluti eins og geymslutæmingu og þannig viðbjóð, ætli ég skilji það ekki bara eftir handa Brynjari á meðan ég ætla að bera fyrir mig óléttuverkjum...

    Svo næst á dagskrá fyrir utan flutning og hátíðahöld er auðvitað fæðingarorlofið. Stefni að því að reyna að vinna sem næst að settum fæðingardegi sem er 31.jan til að eiga sem mest orlof eftir að lilla er komin í heiminn, því seriously, 6 mánuðir.... er þetta eitthvað grín eða?? hvað á maður að gera við 6 mánaða gamalt barn? Ekki fær maður inn á leikskóla og það er seriously asnaleg tilhugsun að fara að skilja barnið sitt eftir hjá einhverri dagmömmu allan daginn. Ég fékk alveg besta komment ever um daginn frá ákveðnum samstarfsmanni mínum. Hann fór að spyrja mig út í hvað ég ætlaði að gera work-wise þegar krakkinn kæmi. Ég sagði honum að fyrstu mánuðina ætlaði ég að vera í burtu alveg fulltime en svo myndi ég kannski fara að vinna heima hluta úr deginum og reyna að púsla þessum skitnu 6 mánuðum í eitthvað nothæft. Þá leit hann svona á mig með svona ææææjjjiii augnaráði og fór að segja mér hversu mikilvægt það væri að deila miklum tíma með börnum sínum fyrstu árin og hvað þau væru að mótast mikið og að það væri miklu betra að þau væru að fá áhrif frá foreldrum sínum en ekki einhverju fólki úti í bæ eða ópersónulegum stofnunum (væntanlega að meina leikskóla eða?). Konan hans hefðu sko verið fyrstu 4 árin heima með börnin þeirra og blablabla. Já... einmitt... þú herra framkvæmdastjóri með fjórföld launin mín að segja þetta við mig er eins og ég myndi labba upp að barni í Sómalíu og hrista hausinn yfir lörfunum sem þau væru í og fara að predika yfir þeim mikilvægi þess að leyfa sér öðru hvoru að kaupa sér ný föt því það væri svo gott fyrir sálina að líta vel út! Eins og ég sem venjulegur Íslendingur skuldsettur út ævina við að reyna að eiga heimili fyrir mig og fjölskylduna og öhh... MAT, hafi einhvern séns í rassgati að fara að taka mér 4 ÁRA FRÍ frá vinnu til að dúlla mér heima með börnunum, þó að ég vildi óska að svo væri??? Ertu eitthvað þroskaheftur félagi? Einmitt, af því við búum líka í þannig samfélagi að fólki sem er að reyna að stofna fjölskyldu er gert svo auðvelt fyrir. Akkúrat! Alltaf verið að skerða allt, barnabætur, vaxtabætur, og svo af því að ég og Brynjar erum ekki einhverjir svindlara aumingjar sem nennum að standa í því að skrá okkur í fake-ekki-sambúð eða svíkja-undan-skatti plebbar þá fáum við síðast af öllum inn á leikskóla og þykjum með nógu háar tekjur til að eiga ekki skilið neinar bætur for nothing. 4 ár my ass!

    Talandi um ASS. Sá feita fleskið hann Aron Pálma í búð um daginn. Alveg magnað hvað það er látið mikið með þennan mann. Aron Pálmi er kominn með kærustu - Aron Pálmi vinnur með fötluðum börnum - mamma hans Arons Pálma er komin! Whutt??? So??? Vissuð þið að ef þið tækjuð fötin hans Arons Pálma og bútuðuð þau niður í smærri einingar þá væri hægt að klæða hálfa Eþíópíu?? Sama má segja um hádegismatinn hans! Af hverju er enginn að skrifa um það? - Aron Pálmi og danski kúrinn! - hvenær kemur eiginlega þessi fyrirsögn?

    nóg pirr í bili, þarf að halda áfram að vinna. Djö! :)

    ...tíkin hefur talað!