<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    mánudagur, nóvember 26


    No respect!

    Í spjalli við Siggu Daney um daginn sagði hún mér að í Frakklandi væri borin alveg gríðarleg virðing fyrir óléttum konum og þeim sýnd sérstök tillitsemi eins og t.d. í strætó, þar standa allir upp og gefa óléttu konunni sætið sitt, líka gamla fólkið. Mér fannst þetta sniðugt og soldið over the top kannski, ég meina maður er nú ekki við dauðans dyr þó maður sé nokkrum kílóum þyngri og persónulega myndi ég ekki vilja að einhver gömul kona myndi fórna sætinu sínu í strætó fyrir mig. Alla vega fannst mér þetta soldið silly þegar hún sagði mér þetta á sínum tíma.

    Engu að síður fór ég að hugsa slatta um þetta eftir þetta samtal því sem lengra líður á meðgönguna verður maður óneitanlega þreyttari við hina minnstu áreynslu og svona litlar sálir eins og ég eigum það til að vorkenna okkur heil ósköp. Þó ég hafi verið algjör töffari fyrstu mánuðina og þoldi ekki þegar einhver karlagimp voru að láta með mig eins og fatlafól og bjóðast til að bera fyrir mig kassa sem voru 300 grömm þegar ég var fullfrísk þá fúlsa ég aldeilis ekki við hvers kyns aðstoð sem mér er boðin í dag, hversu lítil sem hún er og skammast mín lítið sem ekkert. Ég vil samt taka það fram að ég ætlast ekki til að fá einhverja special treatment neins staðar en ég er alltaf voða glöð þegar hún býðst.

    Það sem hins vegar fer alveg fyrir brjóstið á mér er að hér á Íslandi, þar sem mannasiðir eru af skornum skammti, þá ekki einungis fær maður ekki special treatment, heldur öfugt ef eitthvað er! Ég hefði ekki trúað sumu upp á fólk nema af því ég er sjálf að lenda í því og sjá það með eigin augum að Íslendingar er upp til hópa fífl þegar kemur að ókunnugum. Ég hef verið Hagkaup á leiðinni á kassa með litla körfu með kannski 10 hlutum í. Ég hef átt 3-4 skref eftir að kassanum þegar manneskja sem var líka á leiðinni að kassanum "gefur í" og hraðar sér til að ná á undan mér! Ég verandi á hraða snigilsins tapa því iðulega í þessu kapphlaupi. Þetta hefur gerst oftar en einu sinni, true story.

    Önnur true story gerðist einmitt í Hagkaup í Skeifunni um daginn. Hver sá sem óléttur hefur verið veit að því meira sem bumban stækkar því minni verður pissublaðran. Ég þarf næstum að eiga pissustopp hvar sem ég kem, sem er óþolandi. Ég var einmitt stödd í fyrrnefndu Hagkaupi þegar slíkt gerir vart við sig og ég fór og leita að klósetti. Þegar ég fann það var það upptekið þannig að ég beið róleg eftir að viðkomandi kláraði. Á meðan ég stend þarna kemur dama aðvífandi og labbar að hurðinni og tekur í húninn en það var auðvitað læst. Svo bara tekur hún sér stöðu fyrir utan og lætur eins og hún sjái mig ekki. Ég alveg í spreng verð mjög pirruð inní mér en segi ekki neitt (ákvað að leyfa henni að njóta vafans þangað til glæpurinn yrði endanlega framinn). Svo viti menn, hurðin opnast og hún treður sér inn. Ég stend gapandi fyrir utan og á meðan ég er að ákveða hvort ég eigi að banka á hurðina eða bíða með að berja hana þangað til ún kemur út koma tvær aðrar dömur og stilla sér líka upp fyrir framan hurðina og bíða. Ég alveg brjál (minni á að mér var mjööög mál) og færi mig nær svo það fari ekki á milli mála að ég sé að bíða eftir klósettinu og hverjum þeim sem ryðjist fram fyrir mig bíði ekkert nema opinn dauðinn. Nema hvað, þegar hurðin loksins opnast eru þær ekki lengi að rjúka til og konan fékk varla að koma út áður en þær ruddust inn fram fyrir mig. Ég held að ég þurfi ekki að segja ykkur hvernig andlitið á mér varð á litinn! Halló góðan daginn! Á öllum af þeim skemmtistaðaklósettum sem ég hef verið stödd á seint um nótt innan um mjög ölvaðar íslenskar beyglur hef ég aldrei séð slíka frekju! Og þar var ég EKKI með bumbu út í loftið á stærð við meðalstóra plánetu. Ef ég hefði verið fær um það þá hefði ég lamið úr þeim allar tennurnar og slitið af þeim hnéskeljarnar og látið börnin þeirra horfa á! Fkn mellur.

    Ég sendi þeim líka eins illa strauma og ég gat og ef ég hef einhvern vott af yfirskilvitlegum hæfileikum munu þær deyja úr krabbameini með dass af syfilis og graftarkýlapest innan fárra mánaða. Sama gildir með alla hina fávitana sem í framtíðinni ryðjast fram fyrir mig á meðan ég er í þessu ástandi.

    Takk fyrir og veriði bless.

    ...tíkin hefur talað!