<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    þriðjudagur, nóvember 6


    Héðan er allt hmphfrhnj að frétta.

    Allt í sparsli og ryki og leiðinlegt að vera heima hjá sér. Mathieu ætlar nú samt að reyna að klára þetta og mála stofuna í fyrir næsta mánudag. Vona að það náist. Hann mun allavega hafa frið til þess þar sem ég ætla að skella mér til Parísar næstu helgi að heimsækja hana Lilju Evu vinkonu, og hann Ghislain Evu kærasta. (hann vill allavega meina það að þau séu ment tú bí saman sko).


    Hlakka alveg hryllilega mikið til að komast þangað. Marseille er nefninlega ekkert svo spennandi þegar það er ekki nógu heitt til þess að fara á ströndina...

    Fólkið hérna er afskaplega skrýtið. Allir eru besti vinir þínir í fyrstu ca. 24 tímana sem maður hittir það og svo er það bara búið! Og svo bara eitthvað furðulegt baktal eins og maður sé aftur orðinn 8 ára. Vil taka það fram að Mthieu er alveg sammála mér í þessum málum, bara svona svo þið haldið ekki að ég sé bara að segja þetta af biturleika vegna þess að fólki líkar ekki við mig. Fólki má sko alveg ekki líka við mig. Það pirrar mig ekkert svakalega. (Lier, lier, pants on fire) Það er bara óþolandi hvað allir taka þátt í þessum þykjast + baktal skrípaleik. Í París þá segir fólk það a.m.k. bara hreint út (eða svona nánast) ef það er ekki að konnekta við þig. Amms.

    Og svo eru allir alltaf svo reiðir hérna! Ég hélt einmitt einhverneveginn að nálægðin við sjóinn og sól 360 daga á ári hefði þau áhrif að allir væru voða ligeglad alltaf. Not the case. Það eru allar öskrandi allsstaðar þar sem maður fer. Ótrúlegt. Og að ég tali nú ekki um fjölskyldu míns heittelskaða! Þau eru spinnegal! Bjóða manni í mat og spilakvöld og fara svo öll í fýlu afþví einn vildi spila í eldhúsinu og hinn í stofunni og þessi gekk ekki frá mjólkinni og svo er bara öskrað og öskrað (á há cé-inu) þangað til gestirnir flýja. (Eftirá að hyggja sé að kannski vildu þau bara losna við okkur af því við erum svona agalega leiðinleg... :Þ) En ég er sko að tala um fullorðin fólk hérna. Frá aldrinum 29 (held ég) og að ganga 60! Gaman að þessu.

    Aðalbömmerinn er samt að núna loksins höfum við nóg pláss til að bjóða fólki í dinner og svoleiðis heim til okkar, en við bara höfum engum að bjóða! Allt skemmtilega fólkið sem við þekkjum er í París.


    Ok, nóg af kvarti og kveini.

    Svona miðað við aðstæður þá erum við Mathieu samt voða happy. Sem betur fer þá getum við verið endalaust saman bara 2 án þess að okkur leiðist of mikið. Gott mál.

    Og svo er nú einhver slatti af fólki að koma í heimsókn til okkar fljótlega. Ghislain og Annabelle (vinir) ætla að reyna að kíkja fyrir jól og svo líka Jackie og Phil kærastinn hennar. (Það segir samt ýmislegt þegar ég hlakka virkilega til að fá Jackie í heimsókn, eh Tinna ;) )

    Svo eru einhverjir vinir Mathieu sem búa ekki of langt í burtu sem ætla líka að reyna að kíkja. Voða gaman semsagt.

    Ég er náttla búin að missa alla von um að þið bumbur kíkið, og fyrirgef ykkur það svosem alveg. :D


    Eitt hérna sem ég hef tekið eftir hérna í Marseille sem mér finnst nokkuð spes; í götunni minni frá númeri ca 50 til 150 eru hvorki meira né minna en 8 hárgreiðslustofur! Og í borginni allri eru þær hreinlega út um allt! Bakarí – hárgreiðslustofa – slátrari – hárgreiðslustofa – banki – hárgreiðslustofa – kaffihús – hárgreiðslustofa...

    Ég fór náttla strax að horfa aðeins í kringum mig, svona að tékka á því hvort að Marseille búar væri eitthvað fallegri um hárið en annað fólk en ég hef ekki tekið eftir neinum marktækum mun. Ég hef því komið upp með þá kenningu að hárgreiðslustofur séu svona « front » fyrir Marseilleísku mafíuna og að í skjóli hárbursta og hárblaára fara fram vægast sagt ólegleg viðskipti með kókaín (og ansjósur), Sem útskýrir nefninlega líka hvað allir eru skapstökkir (og andfúlir) hérna. Þar hafiði það. Aðrar hugmyndir um ástæðuna á bakvið þennann ótæpilega fjölda hárgreiðslustofa hér í Marseille eru þó vel þegnar.


    Annað. Ég hélt að það væri mikill hundaskítur í París. Miðað við Marseille þá er París eins hrein og innaníið í uppþvottavél. Það er skítur út um allt hérna. (Hingað til þá hef ég ekki verið það óheppin að stíga í áðurnefndan skít (7, 9, 13), en ég er komin með króníska vöðvabólgu á því að vera alltaf að horfa niður fyrir mig. Þetta veldur því einnig að ég á í miklum erfiðleikum með að rata um borgina þar sem allar gangstéttir líta svipað út. )

    Til að toppa ógeðið þá hafa einhverjir hundaeigendur einkað sér ca. 100 fermetra grasbala í nágrenni við íbúðina okkar, þar sem þeir fara með hundana sína og leyfa þeim að skíta. Þetta fólk telur sig örugglega mjög pent og siðmentað að láta hundana sína ekki skíta á gangstéttirnar, en einhverra hluta vegna þá gerir það sér ekki grein fyrir því að ef 100 hundar koma saman á sama 100 fermetra grasbalann dag eftir dag til að skíta þá skapast af þvi ólykt sem ekki eru til orð til að lýsa. Bætið svo 20 graðu hita í þessa jöfnu og útkoman er...........

    Get ekki og vil ekki ímynda mér hvernig þetta er á sumrin þegar hitinn fer upp í 35-40 gráður. Jakk.


    Nóg neikvæðni í bili. Scheize hvað það er gott að blása svona aðeins út. :D

    Hlakka vangefið til að koma heim um jólin og hitta normal fólk (sem rífst ekki all the f***ing time) og borða normal mat (þ.e. ekki með ansjósum) og gera normal hluti. Je.

    Gæti það verið að þessi útlandabaktería í mér sé að batna?

    ...tíkin hefur talað!