<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    sunnudagur, júní 17


    Plan B... eða jafnvel plan C

    Eftir miklar umræður undanfarið við nokkra mismunandi aðila finnst mér tímabært að koma með smá innlegg hérna um ofannefnd plön þar sem þau virðast vera mjög vinsæl þessa daganna...

    Dæmi 1: Gaur hittir stelpu og deitar hana í nokkur skipti, gaur hittir svo fyrrverandi kærustu sína og tekur aftur saman við hana og hættir að deita stelpuna, en hringir svo aftur í hana þegar hlutirnir ganga ekki upp með kærustunni. Stelpa = plan B.

    Dæmi 2: Gaur fer á djammið og ætlar ekki einn heim. Í hvert einasta skipti sem hann fer á djammið er hann með plan A, plan B og plan C. Ef plan A gengur ekki upp tékkar hann á plani B, ef B gengur ekki þá er það hefur hann alltaf plan C...

    Dæmi 3: Gaur hættir með kærustunni sinni og hittir nýja stelpu. Þau verða kærustupar í stuttan tíma en hlutirnir ganga ekki upp. Gaurinn fer þá skríðandi aftur til fyrrverandi... Fyrrverandi = Plan B.

    Dæmi 4: Gaur fann ástina í lífi sínu en þau hætta saman. Hann á aldrei eftir að komast yfir hana en á samt góða "vinkonu". Nokkrum árum seinna segist hann vera kominn yfir kærustuna og vill
    reyna á hlutina með vinkonunni... Vinkonan = plan B?

    Dæmi 5: Gaur reynir við þig á djamminu kl 5 um morguninn... Hvað ætli hann sé búinn að reyna við margar stelpur fyrr um kvöldið? Þú gætir verið plan C eða D... eða kannski bara R eða S... hver veit?

    Fyrir mig að dæma þá finnst mér ekki mjög eftirsóknarvert að vera annað en plan A... og finnst mér að enginn ætti að sætta sig við minna en það. En það er bara mín skoðun :)

    ...tíkin hefur talað!