<body>
...INFO

Ofurklúbburinn Dramatíkur
- Since 2004 -

...LAS CHICAS DRAMA

Evita
El Tino

Sandra
Bellabong

Foxy Red

Huggzy

Elín Birna

...ÖNNUR FEGURÐ

Sævar sæti
Hrannar og bró
Mini-Tino
TinBelEve
Mikael
Junior Pungsi

...PÆLINGAR

What do do?
Halda þessari síðu og fixa hana upp!
Fara á 123.is og borga fyrir síðuna
Fara á bloggar.is
Fara á blog.is
Fara aftur á blog.central.is
sleppessu bara mar!
Annað? Hvað...
  
Free polls from Pollhost.com

...MYNDAFEGURÐ

...VOR HISTORÍA


  • desember 2006
  • janúar 2007
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • apríl 2007
  • maí 2007
  • júní 2007
  • júlí 2007
  • ágúst 2007
  • september 2007
  • október 2007
  • nóvember 2007
  • desember 2007
  • janúar 2008
  • febrúar 2008
  • mars 2008
  • apríl 2008
  • maí 2008
  • júní 2008
  • júlí 2008
  • ágúst 2008
  • september 2008
  • október 2008

  • ...THE ARCHITECT

    layout design, coding, photo-editing,

    by ice angel



    Brushes- 1| 2

    sunnudagur, mars 11


    Ég er alltaf að pæla. Pæla af hverju hlutir eru svona og svona og af hverju þetta og þetta gerist og eitthvað svoleiðis. Karma og þess háttar. Ég get ekki annað en trúað á karma þar sem ég hef svo oft og milljón sinnum séð það að störfum.
    Stundum kemst ég að niðurstöðu í pælingum mínum og stundum ekki.

    Hefur einhver séð myndina The Secret? Ég er að fara að horfa á hana með skólafélögunum í vikunni og hlakka ég mikið til, er búið að langa að sjá hana svolítið lengi. Fyrir þá sem ekki vita þá er hún um "Law of attraction". Eða hvernig við getum fengið það sem viljum. Og það sem mér skilst af því sem ég hef heyrt og séð er það bara að hugsa nógu mikið og sterkt um það og þá kemur það til þín. Við nefnilega eigum það rosalega mikið til að hugsa um það sem við viljum ekki og vonum að gerist ekki... Ég trúi svolítið á þetta. Get alveg nefnt nokkur dæmi af minni reynslu og annara fyrir þá sem hafa áhuga.

    Þegar ég var 16 ára lítil vitlaus stelpa langaði mig ógeðslega mikið í kærasta sem heitir Adam. Ég man að ég var að tala um það við Steinunni vinkonu mína þegar við vorum í unglingavinnunni og lágum í sólbaði í grasinu hvað það væri sniðugt ef ég ætti kærasta sem heitir Adam. Adam og Eva. Mér fannst þetta ekkert smá sniðugt at the time og lét mig dreyma um það. Fyrir algjöra tilviljun nokkrum vikum seinna kynnist ég mínum fyrrverandi, honum Adam... Hann varð skotinn í mér um leið og hann sá mig. Mér fannst hann ljótur og hafði engan áhuga á honum, en það tók svona tvær vikur fyrir mig að verða skotna í honum og byrja með honum. Ég vil samt að það komi fram að ég byrjaði ekki með honum útaf nafninu... :)

    Ég var að ræða við Elínu vinkonu mína um karlamál mín í fyrra og tjáði henni það að mig langaði að hitta einhvern sem væri ógeðslega fyndinn, kæmi mér alltaf til að hlægja... Mjög stuttu seinna kynnist þessum líka ógeðslega fyndna gaur og hitti hann eitthvað nokkrum sinnum, en það gekk samt ekki upp. En hann var mjög fyndinn...

    Ég var með rosalegar fjárhagsáhyggjur á síðasta ári, hugsaði ekki um annað en hvað ég ætti lítinn pening og hvað ég hafði ekki efni á þessu og hinu og alltaf komu til mín ný og ný útgjöld... Þangað til ég hætti að pæla í því og fór í "þetta reddast" pakkann, síðan þá hef ég bara verið í sæmilegum málum.

    Ég veit um konu sem var paranojuð á því að fá krabbamein. Hún fór á mánaðarfresti í skoðun þangað til hún var komin með krabbamein í brjóstið ári eftir að paranojan byrjaði...

    Hver þekkir svo ekki a.m.k. eina stelpu sem lendir alltaf með vonlausum gaurum og er alltaf að tala um hvað hún er óheppin að lenda alltaf með svona vonlausum gaurum? Ég las það einhvers staðar að það var ein svona stelpa sem fékk alveg nóg einn daginn og tók til bók og skrifaði í hana allt sem hún vildi í lífinu. Skipti því niður í nokkra flokka svo sem hvað hún vildi fá útúr ástalífinu, vinnumál, fjárhagur o.s.frv. og allt sem hún hafði skrifað í þessa bók rættist.

    Ég held að þetta sé bara málið. Maður þarf bara að vita hvað maður vill og einblína á það og þá kemur þetta allt saman. Í staðinn fyrir að einblína á allt sem að maður vill ekki... Call me crazy, en ég trúi þessu.

    Hér er linkur á fyrstu 20 mínúturnar af myndinni The Secret. Mæli alveg með að þið kíkjið á þetta þegar þið hafið tíma og áhuga :)
    Mæli líka með myndinni What the bleep do we know? Sem er svolítið svipuð, en samt ekki alveg um það sama.

    ...tíkin hefur talað!