Ókei ég vissi að ein ákveðin barnsmóðir gengi ekki alveg heil til skógar en hversu mikið uppá vantaði vissi ég ekki fyrr en nú. Ókei hvað finnst ykkur? Höfum þetta í semi-dulmáli til að vernda sakleysingjana eða whatever.
Verið er að halda uppá ákveðna kirkjulega athöfn fyrir sameiginlegt barn. Annað foreldrið býr erlendis en er tilbúið að borga helming í öllum kostnaði við atburðinn og krefst þess ekkert endilega að fá að ráða miklu er varðar atburðinn. Nota bene mikil smámunasemi virðist hafa ráðið því hvað telst kostnaður við atburðinn og er t.d. kostnaði á klippingu, sokkum og nærbuxum skipt hnífjafnt til helminga. "Íslandsforeldrið" ákveður allt er varðar atburðinn án þess að spyrja erlenda foreldrið nokkurs og sendir svo tölvupóst þar sem það fer frammá að foreldrið sem býr erlendis borgi "Íslandsforeldrinu" tímakaup fyrir undirbúninginn þar sem "erlenda" foreldrið kemur ekki til með að taka fullan þátt. Döhh það er erlendis!! Tek það líka fram að aðeins tæp 15% þeirra sem viðstaddir verða atburðinn koma frá "erlenda" foreldrinu, restin er frá "Íslandsforeldrinu" en samt sem áður er kostnaði skipt í flestum tilvikum til helminga, einungis kostnaði við veitingar við umræddan atburð er skipt hlutfallslega. "Erlenda "foreldrið kemur auk sameiginlegs kostnaðar til með að borga rándýrt flugfar til að vera viðstatt atburðinn. Finnst ykkur "Íslandsforeldrið" ekki pínku kúkú eða er það bara ég???